1. Reynslusögur af kreminu Jöklamús "Sigga krem"

 joklamus_siggakrem_981033.jpg

 

 

Eva Björnsdóttir

Eva Björnsdóttir var stödd í Haukafelli í útilegu með hóp af unglingum úr vinnuskólanum frá Höfn.  Hún var verkstjóri yfir hópnum, og þetta voru lokin á vinnuskólanum.  Það átti að vera varðeldur um kvöldið, þegar það kom að því að kveikja í bálkestinum var skvett á hann bensíni, það var heitt í veðri og mynduðust miklar bensíngufur í kringum köstinn.  Og þegar kveikt var í, varð mikil sprenging og stóð Eva í eldhafinu sem myndaðist, og virtust bensíngufurnar hafa farið inn undir fötin sem hún var í og brenndist hún illa.  Hún fékk aðhlynningu á Heilsugæslustöðinni á Höfn, henni fannst batinn ganga seint, Haraldur Jónson föðurbróðir hennar benti henni á að Sigurður Einarsson væri að sjóða jurtaáburð.  Haraldur hafði komist í kynni við áburðinn þegar hann sólbran mjög illa á pollamóti úti í Vestmannaeyjum, hann ráðlagði Evu að tala við Sigurð og athuga hvort hún gæti ekki fengið áburð hjá honum.  Hún fékk áburinn og hann var notaður á sárin þegar skipt var um umbúðir á hjúkrunarheimilinu, og árangurinn lét ekki á sér standa, minni sviði, minni kláði og sárin hurfu á ótrúlega stuttum tíma. 

Bestu kveðjur

Siggi og Gulla

www.joklamus.is

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband